05.09.1917
Neðri deild: 52. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1000 í C-deild Alþingistíðinda. (3357)

116. mál, bæjarstjórn á Siglufirði

Stefán Stefánsson:

Við flm. erum þakklátir nefndinni fyrir afskifti hennar af málinu, því að þótt álitið sje ekki langort, þá sýnir það skýrt afstöðu hennar, að hún skoðar það fullkomið sanngirnismál, enda munu allflestir hv. þingdm. þannig líta á það, en, eins og hún tekur fram, þá er undirbúningur málsins nú orðinn sá, að við flm. sjáum okkur ekki annað fært en taka frv. aftur.