08.08.1917
Neðri deild: 28. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1011 í C-deild Alþingistíðinda. (3367)
122. mál, sala á þjóðjörðinni Höfnum
Flm. (Þórarinn Jónsson):
Að eins örfá orð. Það er ekki til neins að deila um þetta við háttv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.). Deildin getur hvort sem er ekki skorið úr því, hvor rjettara hafi fyrir sjer. Hið eina, sem hægt er að gera, er að vísa málinu í nefnd, til þess að hún geti rannsakað skjöl þau, er fyrir liggja, með þeim upplýsingum, sem þar eru að fá. Á jeg þar einkum við virðingargerðina og lýsingu á kostum jarðarinnar. Því að út frá því verður að ganga, að umboðsmaður sje jörðinni kunnugastur, og engin ástæða til að efa, að hann skýri rjett og hlutdrægnislaust frá, og láti þar ekkert ótalið, sem jörðinni má telja til kosta.
Háttv. þm. V.-Ísf. (M.Ó.) gat um það, að auka mætti varpið, með því að gera hólma í vatninu. Mjer þykir ekki ólíklegt, að þetta kunni að vera rjett, en engar skýrslur liggja fyrir um það, hversu auðvelt mundi að gera hólmann, eða hvað það mundi kosta. (M. Ó.: Nóg er grjótið við hendina). Það getur vel verið. En á hitt ber þá líka að líta, hvort ekki sje nein hætta á, að varpið verði dregið frá Höfnum undir Kaldrana. Það er álit mjög ábyggilegra manna, að það væri auðvelt. Og ef það væri gert, þá skerðir það auðvitað Hafnir að mun, þar sem ábúandi Kaldrana á hálfa jörðina. Og enn má geta þess, að þar sem landssjóður hefir lagt í það að leggja fram fje til umbóta á jörðum sínum, þá hefir það oftast verið illa ráðið og illa frá gengið, af ástæðum, sem áður hafa verið teknar fram hjer í deildinni.
Jeg skal játa það, að jeg hefi ekki mikið vit á því, hversu auðvelt er að byggja höfn þarna. En hitt veit jeg, að höfnin í Kálfshamarsvík er góð, og jeg er þess fullviss, að jafngóð höfn verður ekki gerð í Höfnum nema fyrir ærið fje, sem engan veginn svaraði kostnaði. Það má því fyllilega ganga að því sem gefnu, að höfnin í Kálfshamarsvík verði notuð framvegis. Orð þm. (M. Ó.) um sumarbústað, ef góður vegur væri kominn þarna út eftir, veit jeg ekki hvernig jeg á að taka. Líklega hefir það verið sagt í gamni, enda varla hægt að taka það öðruvísi. Jeg hefi ekki heyrt, að nokkrum hafi dottið í hug, að þangað yrði nokkurn tíma lagður akvegur, enda sjórinn þar til flutninga. Þetta er á útkjálka, eins og allir vita, og hefir ekki einu sinni þótt takandi í mál að leggja þangað síma, hvað þá heldur veg. Um slægjurnar þýðir ekki að þrátta. Það hefir enn ekki komið fyrir eitt einasta sumar, að ekki hafi verið heyjað mikið upp á heiði. Þótt grasblettir sjáist í kringum bæinn, þá segir það ekki mikið til að fóðra mikinn búpening. Vetrarríki er þar afarmikið. Þó að fjörubeit sje þar að vísu talsverð, þá tekur fljótt fyrir beit handa hestum, og harðindi eru oftast eða altaf svo mikil, að hafa verður allan pening á gjöf mikinn hluta vetrarins. Það segir sig því sjálft, að smáblettir segja ekki mikið handa stóru búi.