19.07.1917
Neðri deild: 14. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1016 í C-deild Alþingistíðinda. (3375)

69. mál, sala á ráðherrabústaðnum

Flm. (Sigurður Sigurðsson):

Til svars aths. hæstv. forsætisráðherra skal jeg geta þess, að mjer hafði dottið í hug, að þegar till. væntanlega hefði verið samþ. í báðum deildum, þá yrði tekin upp í fjárlögin heimild til sölunnar. En ef það álíst ekki tryggilegt eða í samræmi við lög, vil jeg gjarnan ganga inn á að laka málið út af dagskrá að þessu sinni.