19.07.1917
Neðri deild: 14. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1016 í C-deild Alþingistíðinda. (3376)

69. mál, sala á ráðherrabústaðnum

Forsætisráðherra (J.M.):

Jeg býst ekki við, að ólöglegt sje að fara þessa leið. Þessi leið hefir áður verið farin, að selja eftir heimild í fjárlögunum. En mjer virðist nóg að ræða þetta mál, er fram kæmi brtt. við fjárlögin. Hitt er nýmæli og auk þess tvíverknaður, sem mjer sýnist óþarfur.