14.07.1917
Neðri deild: 10. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1034 í C-deild Alþingistíðinda. (3405)

45. mál, erfðaábúð

Sveinn Ólafsson:

Jeg skal ekki tefja umræður. Jeg vildi að eins óska, að deildin ljeti ekki háttv. 2. þm. Árn. (E. A.) telja sjer hughvarf. Hann vill auðvitað losna við erfiðið, en það var einmitt hann, sem jeg hafði fyrir augum með uppástungu minni. Mjer þætti því skaði, ef málið færi í landbúnaðarnefnd og hans ráða nyti eigi í meðferð þess.