25.07.1917
Efri deild: 14. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 768 í B-deild Alþingistíðinda. (356)
13. mál, einkasöluheimild landsstjórnarinnar á steinolíu
Magnús Kristjánsson:
Jeg hefi ekki neitt sjerstakt að athuga við ræðu háttv. 4. landsk. þm. (G. G.). Jeg vil að eins taka það fram aftur, að eftir orðalagi frumv. er það alls ekki útilokað, að gjaldið geti orðið hærra en 4 kr.
Fyrirkomulag það, sem nú er, álít jeg best og tryggast, nfl. að stjórnin versli eftir því, sem þörf þykir og föng eru á, og sýnist ekki vera neitt því til fyrirstöðu, að þeim hætti sje haldið áfram. Það er fyrst eftir margra ára reynslu, sem það gæti komið til mála að koma á einkasölu.
Þá get jeg ekki betur sjeð en að það sje hreinn óþarfi að ákveða fast gjald fyrirfram. Landsstjórnin hefir hingað til gætt þess að leggja hæfilegt gjald á vörur þær, sem hún hefir verslað með, og mundi hún sjálfsagt halda við þeirri venju, án allra lagaákvæða.
Annars er það mín skoðun, að öll verslun eigi að vera frjáls, að svo miklu leyti sem frekast er unt, og þá fyrst eigi að grípa til einkasölu, þegar frjáls samkepni nægir ekki til þess að halda við sanngirni í verðlagi vörunnar.