10.08.1917
Efri deild: 27. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1192 í C-deild Alþingistíðinda. (3575)

151. mál, vatnsafl í Sogninu

Kristinn Daníelsson:

Jeg leyfi mjer að leggja til, ef hin rökstudda dagskrá verður ekki samþykt, að máli þessu verði, að þessari umr. lokinni, vísað til sjerstakrar nefndar, sem skipuð verði 5 mönnum. Málið tel jeg svo mikilsvert, að nefndarmenn megi ekki færri vera.