31.07.1917
Neðri deild: 21. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1221 í C-deild Alþingistíðinda. (3593)
97. mál, hámarksverð á smjöri
Forsætisráðherra (J. M):
Jeg þóttist taka það nægilega skýrt fram, að mjer sýndist till. ekki vel í samræmi við lög og reglugerð, sem þáverandi ráðherra gaf út og hv. 2. þm. Árn. (E. A.) mun kannast við. (E. A.: Jeg hefi þau hjer fyrir framan mig). Hv. 2. þm. Árn. (E. A.) las ekki upp alt, sem að þessu lýtur, eins og jeg átti von á. Lögin segja, að ákvæðum verðlagsnefndar megi skjóta til stjórnarráðsins til fullnaðarúrslita. En í 1. gr. reglugerðarinnar stendur, ef jeg má lesa hana upp, með leyfi hæstv. forseta:
„Nefndin hefir fult vald til að ákveða hámark söluverðs um land alt á innlendri og útlendri nauðsynjavöru, svo og hverri þeirri vöru, er ástæða þykir til. Nefndin ákveður sjálf, hvað sje nauðsynjavara“.
Hjer er það lagt nefndinni á vald að ákveða verð á hvaða nauðsynjavöru sem vera skal. Það, sem till. fer fram á, er að taka smjör út úr tölu þeirra vara, sem nefndin hefir fengið fult vald til að ráða verðinu á. Hjer er ekki farið fram á að breyta verðlagi, heldur að stjórnarráðið úrskurði, að smjör sje sú nauðsynjavara, er ekki má setja hámarksverð á. (E A.: Hjer er að eins farið fram á, að þetta hámarksverð, sem nú er, sje afnumið). Er það sama sem að hækka verðið? (E. A.: Nei, einungis afnema þetta hámarksverð). Væri þá nægilegt, eftir meiningu tillögumanna, að breyta hámarksverðinu, hækka það? (S.S.: Afnema einungis þetta hámarksverð). Ef svo er, get jeg ekki lýst yfir því, að stjórnin neiti að taka ályktunina að einhverju leyti til greina. En mjer virðast ræður manna hafa gengið út á að leggja ekki hámarksverð á smjör. Það getur verið hugsanlegt, að stjórnarráðið taki til íhugunar, hvort ekki sjeu nú svo breyttar ástæður fyrir hendi, að verðið mætti vera dálítið hærra. Vona jeg þá, að það sje skýrt fyrir mönnum, hvað jeg á við. Hvað hitt atriðið, skömtun smjörs þess, er landssjóður hefir keypt, áhrærir, er sjálfsagt að taka það til íhugunar. Það hefði verið gert fyr, ef farið hefði verið fram á það, og bæjarstjórn eða matvælanefnd hefði treyst sjer til að úthluta því á einhvern hátt.
Jeg skal svo að lokum koma að því aftur, að þrátt fyrir það, þótt hv. flutnm. (S. S) segist ekki hafa meint það með till. að hindra, að hámarksverð væri lagt á smjör, þá verð jeg að segja, að eftir orðalagi till. skilst mjer þeir ætlast til, að hámarksverðið sje felt úr gildi, án þess að setja nokkuð í staðinn.