01.09.1917
Neðri deild: 49. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1245 í C-deild Alþingistíðinda. (3621)

173. mál, skólahald næsta vetur

Forsætisráðherra (J.M.):

Jeg vildi að eins leiðrjetta hv. þm. Dala (B. J.). Jeg sagði ekki, hvað stjórnin hefði afráðið, en gat þess einmitt, að stjórnin hefði ekki tekið neina afstöðu og ekkert ráðið af í þessu máli. Jeg kvaðst tala fyrir mig einan, og taldi fram þær ástæður, er til greina gætu komið. Bar það ekki að skilja svo, að jeg talaði í nafni stjórnarinnar allrar.