13.09.1917
Neðri deild: 59. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1307 í C-deild Alþingistíðinda. (3688)

182. mál, flutningsgjald á landssjóðsvörum

Forsætisráðherra (J.M.):

Jeg verð að álíta, að hv. 2. þm. Árn (E. A.) hafi ekki athugað það, að 42. gr. þingskapanna ræðir um það, ef máli er vísað frá. Í 41. gr. er ákvæðið um það að vísa til ráðherrans. Hjer er ekki um neina frávísun að ræða, svo að hv. 2. þm. Árn. (E. A.) hlýtur að hafa farið greinavilt.