15.09.1917
Sameinað þing: 7. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2323 í B-deild Alþingistíðinda. (3714)

Verðlaunanefnd gjafar Jóns Sigurðssonar

Bjarni Jónsson:

Jeg vil leyfa mjer að geta þess, að háskólakennari Jón Jónsson, sem verið hefir í nefnd þessari, auk þeirra Björns M. Ólsens og Jóns Þorkelssonar, þjóðskjalavarðar, hefir átt tal við mig um kosningu þessa og beiðst eindregið undan endurkosningu.

Vil jeg leyfa mjer að stinga upp á Hannesi Þorsteinssyni, aðstoðarskjalaverði, í hans stað.