30.08.1917
Efri deild: 43. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2329 í B-deild Alþingistíðinda. (3728)

Ráðherraskipti

Forseti:

Áður en gengið verður til fundarstarfa vil jeg leyfa mjer að tilkynna, að hæstv. forsætisráðherra hefir beðið mig að lýsa yfir því, að h. h. konungurinn hafi 28. þ. m. veitt fjármálaráðherra Birni Kristjánssyni, 1. þm. G.-K., lausn í náð frá embætti, og skipað í hans stað s. d. Sigurð sýslumann Eggerz, 2. landsk. þm., fjármálaráðherra Íslands.