08.09.1917
Efri deild: 51. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2334 í B-deild Alþingistíðinda. (3737)

Þinglenging

Forseti:

Eins og háttv. þingdeildarmönnum er kunnugt hefir starfstími Alþingis verið framlengdur til 10. sept. En þar eð þingstörfum getur ekki orðið lokið fyrir þann tíma, vil jeg leyfa mjer að fara þess á leit við hæstv. forsætisráðherra, að hann framlengi starfstíma þingsins til 15. sept.