15.09.1917
Efri deild: 59. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2338 í B-deild Alþingistíðinda. (3744)

Starfslok deilda

Forseti:

Jeg bið ykkur að standa kyrrir, háttv. þingbræður. Jeg veit, að við viljum allir einum huga láta í ljós þá ósk okkar og von, að fósturjörðin losni sem fyrst úr þeim kröggum, sem hún er nú í, og alt gangi henni til heilla og blessunar. Segi jeg síðan þessum síðasta fundi háttv. Ed. Alþingis slitið.