13.08.1917
Efri deild: 29. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 822 í B-deild Alþingistíðinda. (407)

14. mál, fyrirhleðsla fyrir Þverá og Markarfljót

Eggert Pálsson:

Þetta frv. snertir aðallega kjördæmi mitt, og er jafnframt mikils varðandi.

En þar sem jeg þykist vita að háttv. þingdeild sje ljóst, bæði af greinargerð frv. o. fl., hversu málið horfir við, þá finn jeg ekki ástæðu til að fjölyrða um það, en treysti því, að háttv. þingdeild sýni því velvild. Jeg skal geta þess, að málið var í landbúnaðarnefnd í Nd., og styð jeg því þá till. hæstv. atvinnumálaráðherra, að þessi deild vísi því einnig til landbúnaðarnefndar.