14.09.1917
Neðri deild: 60. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 988 í B-deild Alþingistíðinda. (496)

16. mál, dýrtíðaruppbót handa embættis- og sýslumönnum landssjóðs

Frsm. minni hl. (Bjarni Jónsson):

Jeg hefi skrifað undir nál. með fyrirvara. Fyrirvarinn er sá, að þingið gengur svo frá þessu máli, að hjer sje um hjálp að ræða, en jeg tel mig enga heimild hafa til að veita slíka hjálp; en skaðabætur tel jeg þingið hafa góða heimild til að veita.