30.07.1917
Efri deild: 17. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1029 í B-deild Alþingistíðinda. (575)
5. mál, lögræði
Forsætisráðherra (J. M.):
Jeg gat þess um efnisbreytinguna, sem felst í brtt. nefndarinnar, að jeg hefði í sjálfu sjer ekkert á móti henni, en skýrði einungis frá hugsun þeirri, sem lá til grundvallar fyrir þessu atriði í frv. Og jeg þarf naumast að taka það fram, að í þessu átti ekki að vera fólgin nein niðrun fyrir vinnuhjúin. Að öðru leyti legg jeg ekki mikla áherslu á orðabreytingarnar. Eins og jeg gat um áðan er málið á frv. í samræmi við lagamál Háskólans, og mjer finst, fyrir mitt leyti, rjett að halda nýyrðunum. Og jeg fæ ekki sjeð, að það skifti miklu máli, þó að orð sjeu notuð í annari merkingu í lögum en í daglegu tali. En um þetta má lengi deila.