26.07.1917
Neðri deild: 18. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1043 í B-deild Alþingistíðinda. (610)

6. mál, þóknun til vitna

Forsætisráðherra (J. M.):

Jeg get látið mjer nægja að vísa til aths. við stjórnarfrv. Þetta mál var lagt fyrir hv. Ed., og eru breytingar hennar heldur til bóta en hitt. Svo sje jeg ekki ástæðu til að orðlengja um málið nú, en vil leyfa mjer að leggja til, að því sje vísað til 2. umr. og allsherjarnefndar.