04.07.1917
Efri deild: 2. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1055 í B-deild Alþingistíðinda. (641)

9. mál, sjúkrasamlög

Forseti:

Það hefir verið stungið upp á að vísa málinu til allsherjarnefndar, enn fremur hefir verið stungið upp á að kjósa sjerstaka nefnd, og í þriðja lagi hefir verið stungið upp á að vísa málinu til fjárhagsnefndar. Hjer er þá um þrjár venjulegar till. að ræða, og þar sem það nú er höfuðspursmálið, hvort kjósa skuli sjerstaka nefnd eða vísa málinu til fastanefndar, þá vil jeg leyfa mjer að bera fyrst undir atkv., hvort vísa skuli málinu til sjerstakrar nefndar eða ekki.