14.08.1917
Neðri deild: 33. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1152 í B-deild Alþingistíðinda. (794)
18. mál, húsaleiga í Reykjavík
Bjarni Jónsson:
Jeg tel það rjett, sem 1. þm. Reykv. (J. B.) sagði, að tilgangur laganna sje sá, að halda húsaleigu í skefjum og koma í veg fyrir, að menn láti hús standa auð, en sú ályktun hans var harla einkennileg, að þar fyrir bæri að samþykkja frv. óbreytt. Hjer kemur margt fleira til greina. Jeg get t. d. ekki álitið, að hús standi autt, ef jeg kaupi það nú og sest að í því í haust. Það er undarlegt að setja lög um, að menn megi ekki nota sjer eignir, sem þeir kaupa. Ef það er svo margt fólk hjer í bæ, að húsnæðið hrökkvi ekki til, þá á að koma því fólki fyrir annarsstaðar, sem ekki hefir þak yfir höfuðið á sjer. Það væri rjett að byrja á því fólki, sem ekki eingöngu er í vandræðum með húsnæði, heldur og nauðsynlegt viðurværi. Til þess vildi jeg hjálpa með atkvæði mínu. En það óþarfa ranglæti, sem lög þessi valda, og engum kemur að gagni, ætti ekki að eiga sjer stað.