26.07.1917
Neðri deild: 18. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1165 í B-deild Alþingistíðinda. (814)

21. mál, framkvæmd eignarnáms

Forsætisráðherra (J. M.):

Þetta frv. er komið frá stjórninni og var lagt fyrir háttv. Ed., og hefir tekið þar dálitlum breytingum.

Jeg tel óþarft að fara um það nokkrum orðum á þessu stigi málsins, enda eru ástæður stjórnarinnar teknar fram í athugasemdum stjórnarinnar, sem prentaðar eru með frv. Jeg óska eftir, að málinu verði, að lokinni þessari umr., vísað til allsherjarnefndar.