06.08.1917
Neðri deild: 26. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1213 í B-deild Alþingistíðinda. (894)
37. mál, skipting bæjarfógetaembættisins í Reykjavík
Framsm. (Einar Arnórsson):
Það er mikið satt í samanburði hæstv. forsætisráðherra á launum yfirdómaranna og hins tilvonandi undirdómara í Reykjavík. En þó er það eigi alls kostar rjett, að hann eigi að hafa hreinum dómarastörfum að gegna. Nokkur peningaábyrgð hlýtur að fylgja starfi hans, þar sem hann á að hafa með höndum skiftamál, fógetagerðir, uppboð, veðmálabækur og innheimtu uppboðsfjár og fleiri störf, er bakað geta peningaábyrgð. En hvað sem þessu líður, þá er í raun og veru enginn ágreiningur milli mín og hæstv. forsætisráðherra um það, að laun yfirdómaranna sjeu óhæfilega lág, að eins þetta, að mjer finnast störf þeirra ekki alls kostar sambærileg við störf hins fyrirhugaða undirdómara. Mjer þykir gott að heyra, að hæstv. forsætisráðherra er mjer sammála um, að óþægilegt sje fyrir allsherjarnefnd að fara að fjalla um launamál yfirdómaranna og það heyri henni eigi til. Jeg er honum fyllilega sammála um, að það sje ekki óveruleg breyting hjá nefndinni, að hún vill greina lögreglustörfin frá dómarastörfunum.