15.05.1918
Neðri deild: 23. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 982 í B-deild Alþingistíðinda. (1015)

49. mál, styrkur og lánsheimild til flóabáta

Magnús Pjetursson:

Jeg sje, að jeg hefði getað sparað mjer að standa upp, en jeg ætlaði einungis að skjóta því til hæstv. forseta, af því að þessi till. kemur báðum nefndum á óvart, hvort ekki væri rjettara að taka málið út af dagskrá, til þess að nefndirnar gætu athugað það.