29.05.1918
Sameinað þing: 2. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 986 í B-deild Alþingistíðinda. (1033)

49. mál, styrkur og lánsheimild til flóabáta

Magnús Pjetursson:

Jeg ætla að eins að gera þá athugasemd við 2. lið till., fyrir hönd fjárveitinganefndar, að það er ekki tekið fram greinilega, að styrkurinn til Breiðafjarðarbátsins fari ekki fram úr helmingi rekstrarkostnaðar, sem var þó skilyrði fjárveitinganefndar, enda samkvæmt ákvæðum gildandi fjárlaga. Þessu vildi jeg lýsa yfir fyrir hönd nefndarinnar.