02.07.1918
Efri deild: 55. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1102 í B-deild Alþingistíðinda. (1161)
78. mál, hækkun á styrk til skálda og listamanna
Frsm. (Eggert Pálsson):
Þótt nál. sje ekki langt, hygg jeg, að af því muni ljóst, hvað fyrir nefndinni vakir.
Hún vill ekki kljúfa skálda- og listamannastyrkinn þannig, að hann verði að nokkru leyti veittur á nafn, en að nokkru leyti ekki.
Henni þótti því betur viðunandi að hækka styrkinn í heild, og er þá hægt fyrir nefndina að láta þessi tvö skáld njóta þeirrar hækkunar. En eins og sjest á nál., er nefndin því ekki mótfallin, að styrkur þessara tveggja manna hækki um 400 kr. til hvors, og vonar hún, að úthlutunarnefndin taki tillit til vilja hennar og þingsins í því efni, ef till. þessi verður samþykt.
Jeg hygg svo, að öllum sje ljóst, hvað fyrir nefndinni vakir, og vona jeg, að till. þessi, ásamt brtt. nefndarinnar, fái góðan byr í þessari háttv. deild.