07.06.1918
Neðri deild: 41. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1112 í B-deild Alþingistíðinda. (1177)

90. mál, Fiskifélag Íslands

Flm. (Matthías Ólafsson):

Jeg ímynda mjer, að það sje alveg rjett, sem hæstv. forsætisráðherra tók fram, að þetta sje skoðað sem fjárveiting úr landssjóði, því að vitanlega á landsverslunin að fá sitt fje, svo að það komi fram í reikningum hennar, að það hafi verið greitt.