15.06.1918
Neðri deild: 50. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1138 í B-deild Alþingistíðinda. (1215)

97. mál, efniviður til opinna róðrarbáta

Bjarni Jónsson:

Jeg sagði ekki, að háttv. bjargráðanefnd hefði tínt þetta upp úr mínum till., en óskaði að eins, að hún vildi tína upp þau atriði, er feld hafa verið. Það er ekki auðvelt að vita, hvað nefndin gerir í pukri, en hitt liggur þó í dagsljósi, sem prentað er í þingskjölum og þingræðum.

Jeg ætla mjer ekki þá dul að vera vitrari en háttv. bjargráðanefnd. En mjer þykir vænt um, að hún tekur nú upp þessa till., er hún drap fyrir mjer um daginn með atkv. sínum.

Jeg vona, að þessi orðaskifti verði ekki til þess, að háttv. nefnd forðist að tína hið annað einnig upp, sem hún feldi fyrir mjer.