10.04.1918
Sameinað þing: 1. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í B-deild Alþingistíðinda. (1533)
Rannsókn kjörbréfs
Frsm. meiri hl. (Bjarni Jónsson):
Stutt athugasemd. Tveir háttv. þingm., hæstv. forsætisráðherra og háttv. þm. S. Þ. (P. J.) hafa farið rangt með það, sem jeg sagði í stjórnarskrárnefndinni. Jeg sagði ekki, að þar hefði komið til orða líkt tilfelli og þetta, heldur hitt, hvort orðin „deyi“ eða „fari frá“ skyldu endurtekin í síðari hlutanum eða eigi. Um það átti jeg orðastað við Lárus H. Bjarnason, með þeirri niðurstöðu, er jeg sagði áður. Þetta er satt og rjett, enda hafa þessir háttv. þingmenn ekki neitað því, að jeg hafi sagt þetta, heldur hafa þeir fyrst gert mjer upp orð og síðan neitað þeim.