24.05.1918
Efri deild: 26. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 233 í C-deild Alþingistíðinda. (1753)

56. mál, fólksráðningar

Forseti:

Jeg tel mjer skylt að gera kunnugt, að jeg greiði þessu frv. atkv. til Nd., — en ekki af því, að mjer líki það, eins og það nú er orðað, heldur af því, að jeg nú veit, að bjargráðanefndir beggja deild hafa verið í samráðum um þetta mál — og tel því rjett, að hv. Nd. fái það til athugunar, en efalaust að hún muni ekki samþ. það óbreytt, og frv. því koma aftur til atkv. hjer í deildinni.