24.05.1918
Efri deild: 26. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 233 í C-deild Alþingistíðinda. (1754)

56. mál, fólksráðningar

Atvinnumálaráðh. (S. J.):

Jeg vildi að eins lýsa því yfir, að jeg greiði ekki atkv. um frv. þetta; ekki af því, að jeg álíti ekki margt gott í því, heldur af því, að það leggur stjórninni svo mikla ábyrgð og vanda á herðar, að jeg tel rjettara, að það komi frá þinginu einu.