28.05.1918
Neðri deild: 33. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 234 í C-deild Alþingistíðinda. (1758)
56. mál, fólksráðningar
Bjarni Jónsson:
Jeg vildi að eins geta þess alment að nýju, sem jeg tók fram í till. frá mjer á dögunum, að ekki er nægilegt, til þess að tryggja framtíð landsins, að ráðstafa fólkinu, þegar það er orðið bjargarvana, heldur verður að styrkja það áður en það er komið á vonarvöl, svo að til þess komi aldrei. Þessu vildi jeg skjóta til bjargráðanefnar.