03.07.1918
Neðri deild: 62. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 317 í C-deild Alþingistíðinda. (1817)

66. mál, þurrkun kjöts með vélarafli

Frsm. (Einar Árnason):

Jeg vildi að eins lýsa yfir því, fyrir nefndarinnar hönd, að hún getur ekki fallist á þessa rökstuddu dagskrá. Lítur hún svo á, að það sje ekki annað en handhæg tilraun til þess að eyðileggja málið.