13.07.1918
Neðri deild: 70. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 331 í C-deild Alþingistíðinda. (1840)

117. mál, skipun læknishéraða

Pjetur Jónsson:

Jeg álít rjett að vísa málunum til fjárveitinganefndar, en vera ekki að tefja sig við umræður um efni þeirra að svo komnu. Það er sjálfsagt, að nefndin athugi frv. og láti uppi álit sitt um þau, eða reyni að gera eitthvað til samkomulags við hv. Ed. út af þessum málum.