10.06.1918
Neðri deild: 42. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 694 í C-deild Alþingistíðinda. (2059)

12. mál, tekjuskattur og lóðargjöld í Reykjavík

Frsm. (Einar Arnórsson):

Jeg fæ ekki sjeð, að hv. þm. Barð. (H. K.) skifti það nokkru, hvort málið sje tekið út af dagskrá eða ekki. Jeg hefi ekki gefið neitt í skyn um það, hvað nefndin myndi gera við málið, enda hefi jeg ekki borið mig saman við hana um það. Hitt hefi jeg borið undir nefndina, hvort hún óski ekki, að málið sje tekið út af dagskrá, og eru 4 nefndarmenn sammála um það — til hins 5. hefir ekki náðst í svipinn.