16.07.1918
Neðri deild: 72. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 745 í C-deild Alþingistíðinda. (2116)

96. mál, verðlag á vörum

Bjarni Jónsson:

Það er enn óskýrt, hvers vegna hv. flm. þessa frv. völdu þessa leið til þess að afnema verðlagsnefndina. Hefði ekki verið viðfeldnara og kurteisara að fara fram á það við stjórnina, að hún ljeti ónotaða þá heimild, sem þessi lög veita henni. Það hefði mátt gera með þingsályktunartill., og hefði verið í alla staði eðlilegri leið en þetta.