04.06.1918
Neðri deild: 39. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 949 í C-deild Alþingistíðinda. (2224)

82. mál, landsverslunin

Sigurður Stefánsson:

Jeg hefi hlustað á ræður manna um tillöguna og komist að þeirri niðurstöðu, að mikið af þeim er bygt á algerum misskilningi. Það má vel vera, að hún sje ekki sem best orðuð, og því væri það æskilegt, að hún nú yrði tekin út af dagskrá og vísað til bjargráðanefndar, svo að hún gæti orðað hana betur.