18.05.1918
Neðri deild: 26. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1008 í C-deild Alþingistíðinda. (2268)

39. mál, framkvæmdir fossanefndarinnar

Forsætisráðherra (J. M.):

Ef hv. fyrirspyrjandi (G. Sv.) hefði borið þetta mál fram í þingsályktun, þá hefði jeg skilið, að það hefði orðið til að hrinda því áfram, en jeg sje ekki, að þessi leið, fyrirspurn, geti gert það, og þótt samþykt verði tilvísun sú til stjórnarinnar, er hv. fyrirspyrjandi (G. Sv.) leggur til, þá fæ jeg ekki sjeð neitt verulegt gagn af því.