24.05.1918
Neðri deild: 30. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1012 í C-deild Alþingistíðinda. (2280)

48. mál, úthlutun kola

Fyrirspyrjandi (Bjarni Jónsson):

Það, sem jeg ætlaði að spyrja um hjer, er ekki hvernig dýrtíðarkolunum hafi verið úthlutað milli hinna ýmsu sveita og kauptúna, heldur ætla jeg að spyrja hjer um, hvernig úthlutuninni hafi verið háttað milli einstakra manna hjer í bæ, hvað mikið af þeim hafi farið til hinna efnaðri manna hjer í bæ, og hvað mikið til fátæklinganna, sem þingið í fyrra ætlaðist til að fengju það alt.

Svona ber að skilja fyrirspurnina.