08.05.1918
Neðri deild: 18. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 476 í B-deild Alþingistíðinda. (278)

2. mál, ráðstafanir út af Norðurálfuófriðnum

Forsætisráðherra (J. M.):

Atvinnumálaráðherrann hefir beðið mig um að vekja athygli á máli þessu, og óska jeg, að háttv. deild vísi málinu til nefndar. Jeg hefi að vísu ekki fylgst algerlega með þessu máli, en jeg hygg þó, að þetta frv. sje soðið upp úr tveimur frv, er stjórnin lagði fyrir háttv. Alþingi. Býst jeg við, að þau hafi verið í bjargráðanefnd Ed. (Forseti: Annað í bjargráðanefnd, en hitt í samgöngumálanefnd). Hvað sem því viðvíkur, þá hygg jeg, að best sje að vísa þessu máli til bjargráðanefndar, og vænti jeg, að hún athugi frv.