15.05.1918
Efri deild: 19. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 493 í B-deild Alþingistíðinda. (303)

14. mál, bæjarstjórn á Siglufirði

Magnús Torfason:

Mál þetta er af sjerstökum ástæðum tekið á dagskrá með afbrigðum frá þingsköpum, og væri æskilegt, að það væri ekki sett í nefnd fyr en að lokinni annari um. Eru það því tilmæli mín til háttv. þm. Snæf. (H. St.), að hann taki tillögu sína aftur að þessu sinni.