14.05.1918
Neðri deild: 22. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 514 í B-deild Alþingistíðinda. (334)
16. mál, mótak
Framsm. (Magnús Guðmundsson):
Mjer finst heilög skylda mín að vera nokkuð stuttorður, þar sem umr. hafa staðið svo lengi um 1. mál á dagskrá. Allsherjarnefnd hefir komið fram með brtt. á þgskj. 97 um það, að ákvæði 3. gr. frv. gildi um mótak á árinu 1918. Ástæðan er sú, að frv. er orðið svo seint fyrir, að það nær ekki til mótaks á yfirstandandi ári, nema það sje tekið beinlínis fram. Svo er hjer brtt. frá háttv. þm. Stranda. (M. P.) við 1. gr., um mótak utan hrepps eða kaupstaðar, og get jeg vel fallist á hana, en eigi hefir hún verið borin undir nefndina í heild, svo að nefndarmenn hafa atkv. sín óbundin. Fleira hefi jeg ekki að segja.