12.06.1918
Neðri deild: 47. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 545 í B-deild Alþingistíðinda. (382)
20. mál, eftirlaun handa Birni bankastjóra Kristjánssyni
Björn Kristjánsson:
Um leið og jeg þakka hinni háttv. deild fyrir, hve hlýlega hún tók á móti frv. um, að mjer yrðu ákveðin eftirlaun, er málið var til meðferðar hjer í hinni háttv. deild, vil jeg leyfa mjer að taka það fram, að þar sem sá skilningur mun nú af sumum vera lagður í frv., eins og það kom frá háttv. efri deild, að eftirlaunin sjeu því skilyrði bundin, að jeg láti af stjórn bankans 1. júlí þ. á., þá treysti jeg mjer ekki til að ganga að neinu slíku skilyrði, eða að taka við eftirlaunum bygðum á því, og óska jeg því, að frv. um eftirlaun til mín verði tekið út af dagskrá eða felt, ef brtt. allsherjarnefndar á þgskj. 316 verður ekki samþ.