06.05.1918
Neðri deild: 17. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 588 í B-deild Alþingistíðinda. (453)
27. mál, stækkun verslunarlóðarinnar í Ólafsfirði
Flm. (Stefán Stefánsson):
Samkvæmt því, sem jeg gat um við 2. umr. þessa máls, höfum við flutningsmenn nú leyft okkur að bera fram viðaukatill. um stærð verslunarlóðarinnar, eða þó aðallega breidd hennar frá sjó.
Breiddina, 200 metra, höfum við tekið upp samkvæmt ósk Ólafsfirðinga sjálfra. Þeir hafa gert mælingar á lóðinni og telja nauðsynlegt, að hún taki þetta á land upp, og er það óefað rjett álitið, eftir því sem þar hagar til.
Vona jeg svo, að frv. þetta verði samþykt hjer í deildinni, svo að það geti gengið fljótt og óhindrað til háttv. Ed.