06.05.1918
Neðri deild: 17. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 610 í B-deild Alþingistíðinda. (492)
31. mál, hafsaga í Reykjavík
Gísli Sveinsson:
Jeg stend að eins upp til þess að stinga upp á þriðju nefndinni, allsherjarnefnd. Það hefir verið bent á það áður, að ef vísa ætti slíkum málum sem þessu og fleirum til sjerstakrar nefndar sökum þess eins, að það við kemur að einhverju t. d. höfninni hjerna eða vegi úti á landi, þá gæti svo farið, að mál þau, sem nefndin fengi, yrðu nokkuð sundurleit og fráskilin hvert öðru, og gæti orðið til þess, að máli, sem heima ætti, málsins vegna, í einni nefnd, yrði vísað til annarar, og færi það illa, þótt ekkert væri við því að gera. En hjer er ekki verið að ræða um það, hvort hafnsaga eigi að vera hjer í Reykjavík, heldur að eins stutta lagasetningu um þessa hafnsögu, og spurningin verður þá að eins um það, hvort henni sje rjett fyrir komið. Vænti jeg því, að frv. verði vísað til allsherjarnefndar, sem svo er vel skipuð af lögfræðingum, að hún getur vel um það fjallað. En til samgöngumálanefndar tel jeg það ekkert erindi eiga.