06.05.1918
Neðri deild: 17. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 618 í B-deild Alþingistíðinda. (509)
32. mál, fræðsla barna
Forsætisráðherra (J. M.):
Jeg get ekki búist við öðru en stjórnin telji sjer heimilt að verja nokkru fje til þess að halda áfram að undirbúa og rannsaka málið og kosta til þess einhverju fje, en þó ekki nema litlu einu, svo að ef háttv. deild, eða þingið í heild sinni, vildi hafa mjög nákvæma rannsókn á málinu, þá er auðvitað ekki hægt að gera það, nema þá með því að skipa til þess milliþinganefnd; en jeg vil ekki gera till. um, að sú leið verði farin; sú till. verður þá að koma frá Alþingi sjálfu. Jeg held nú reyndar, að þetta megi bíða; jeg er ekki eins sannfærður um það og margir háttv. þm. sýnast vera, að það sje ástæða til að vera með miklar nje viðtækar rannsóknir um þetta mál, heldur sje þegar komið að nokkurn veginn ábyggilegri niðurstöðu um það, hvers hjer þurfi. Jeg get ekki hugsað mjer, að barnafræðsla þurfi að vera mjög mikið öðruvísi hjer en annarsstaðar í heiminum, sjerstaklega þar, sem fræðsla barna þykir best. Jeg get ómögulega skilið það, að Íslendingar sjeu svo alt öðruvísi skapaðir en aðrir menn, að þeir hljóti að hafa öðruvísi barnafræðslu.
Jeg benti á það við 1. umr. þessa máls, að það liti ekki út fyrir, að þeir menn, sem um það hefði fjallað sjerstaklega óskuðu eftir nokkrum grundvallarbreytingum á fyrirkomulaginu.