25.05.1918
Neðri deild: 31. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 661 í B-deild Alþingistíðinda. (550)
41. mál, skemmtanaskattur
Magnús Pjetursson:
Fyrst nefndin er svona frjálslynd, eins og jeg reyndar bjóst við að hún væri, að bjóða mönnum upp á að gera athugasemdir og lofa öllu góðu um að taka þær til greina, þá ætla jeg að leyfa mjer að gera athugasemd við 1. brtt. nefndarinnar. Þar er talað um að leggja skatt á ýmsar skemtanir, og nefndar meðal annars leiksýningar. Er það þá meining nefndarinnar, að leggja megi skatt t. d. á leiksýningar þær, sem Leikfjelag Reykjavíkur heldur uppi. Fjelag þetta er styrkt af opinberu fje og er af öllum viðurkent að vera menningarfrömuður, sem fremur eigi skilið, að því sje veittur styrkur, en að álögur sjeu á það lagðar. Þetta er ekkert gróðafyrirtæki fyrir þá, sem halda uppi sýningunum, heldur gera þeir það að eins listarinnar vegna. Enda er því veittur styrkur, bæði í fjárlögunum og eins úr bæjarsjóði Reykjavíkur. Jeg vildi því leyfa mjer að skjóta því til þáttv. nefndar, hvort ekki muni fært að taka það skýrt fram í lögunum, að Leikfjelag Reykjavíkur skuli vera undanþegið skattaálögum. Ef það er ekki skýrt tekið fram, þá gæti það orðið til þess, að ýmsir álitu, að skatt mætti leggja á leiksýningar þess, og gæti óttinn fyrir því, að lagður kynni að verða skattur á leiksýningarnar, haft áhrif á störf fjelagsins.