28.05.1918
Neðri deild: 33. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 672 í B-deild Alþingistíðinda. (562)

41. mál, skemmtanaskattur

Frsm. (Einar Arnórsson):

Jeg vil að eins lýsa yfir því, að allsherjarnefnd hefir athugað frv. síðan það var til annarar umr. hjer í háttv. deild, og hefir það orðið að samkomulagi milli nefndarmanna að koma ekki með neinar brtt. við það. En ef brtt. kæmu fram, sem eigi röskuðu meginhugsjón frv., skyldi nefndin öll hafa óbundnar hendur um atkvæðagreiðslu.