03.07.1918
Neðri deild: 62. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 692 í B-deild Alþingistíðinda. (596)
41. mál, skemmtanaskattur
Magnús Pjetursson:
Örstutt athugasemd út af orðum háttv 1. þm. Reykv. (J. B.) í sambandi við leikfjelagið. Þótt það sje satt, að ekki hafi verið hreyft röddum um það í bænum að hækka styrkinn til leikfjelagsins, þá held jeg, að það sje algerlega heimildarlaust að taka fje það af leikfjelaginu, er bærinn tekur í skatt. Það er sem sje áskilið í fjárlögunum, að á móti landssjóðsstyrknum skuli koma svo og svo mikið fje frá bæjarstjórninni. Nú tel jeg ekki, að bærinn leggi fjelaginu annan styrk en mismuninn á þessum 500 kr. og því gjaldi, er hann tekur aftur af leiksýningum. Svo framarlega sem Alþingi hefði fengið þetta að vita, hefði það lagt bann fyrir slíka aðferð, því að þegar taka má 5 kr. af hverri sýningu, þá má eins taka 10 eða 20, og þá er ekki lengur um neitt víst tillag að ræða frá bænum móti landssjóðsstyrknum.
Annars vil jeg mæla með því, að þetta mál sje tekið út af dagskrá, svo að gera megi brtt. við það. Held jeg, að mjer sje óhætt að lofa, að málið geti komið eins á dagskrá á morgun fyrir því.