15.05.1918
Neðri deild: 23. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 699 í B-deild Alþingistíðinda. (619)
47. mál, kynbætur hesta
Flm. (Sigurður Sigurðsson):
Jeg vil að eins óska þess, að frv. þessu, um kynbætur hesta, verði leyft að ganga til 2. umr. og síðan til landbúnaðarnefndar. Jeg vona, að sú nefnd athugi málið og geri till. um það, og geri jeg ráð fyrir, að hún fari fram á að samþ. frv. En jeg skal ekki eyða frekari orðum að þessu, að eins óska, að frv. fái að ganga til 2. umr. og síðan til landbúnaðarnefndar.