10.06.1918
Efri deild: 39. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 712 í B-deild Alþingistíðinda. (671)
93. mál, bráðabirgða útflutningsgjald
Karl Einarsson:
Jeg hefi ekki sannfærst af ræðu hæstv. fjármálaráðherra og þeirri hótun, að háttv. Nd. muni ekki samþykkja frv. með þessari breytingu, get jeg ekki gert mikið úr.
Því hefir þegar verið yfir lýst, að tilgangur frv. sje sá, sem brtt. fer fram á, og hvers vegna má ákvæði þetta þá ekki vera skýrt og ljóst í frv.?
Jeg vona, að þessi háttv. deild vilji ekki ganga að því gruflandi, hvað hún samþykkir með frv. þessu.
Það þarf ekki nema einfalt dæmi til að sýna, hvað þetta ákvæði frv. er óljóst. og óákveðið.
Svo getur farið, að nokkur hluti einnar vörutegundar verði metinn hærra en stjórnin getur fengið fyrir vörutegundina hjá Bretum.
Eftir frv. getur stjórnin þá lagt útflutningsgjald á alla vörutegundina. Og geri hún það ekki, mun það auðvitað valda ágreiningi, og hafa þeir þá aðgang að dómstólunum, sem varan var metin hjá til hærra verðs.
Þetta liggur í augum uppi, þar sem engin heimild er veitt í frv. til þess að gera greinarmun á vöru innan sömu vörutegundar.